Endaði þessi ekki í torfærunni í sumar og skeit á sig með meiru ? hehe Ef ekki þá hefur það verið tvífari þessa bíls
Greinilegt að þú mættir ekki á allar keppnirnar í sumar, Því t.d. í hellukeppninni seinni daginn þá varð hann Magnús frá að hverfa í 4. Braut eftir að hafa leitt keppnina með fullt hús stiga fram að því !!! árangurinn var upp og ofan í sumar enda bara tilraunastarfsemi í gangi. Nokkuð viss um að menn muni reka upp stór augu á næsta sumri, Því þá verður vonandi búið að laga þá nokkru vankanta sem voru að hrjá þennan bíl í sumar !!!
Ef þú kemur með rök fyrir því að súkkan hafi skitið á sig með meiru í sumar þá skal ég kannski taka mark á þessum pósti frá þér. Því ef ekki þá held ég þú hafir ekki hundsvit á því sem þú ert að segja !
Þessi verður bara á 36", og ég er að fara að að byrja aftur í honum á fullu eftir annasamt sumar, er samt búinn að gera smá síðan síðast. Það koma vonandi nýjar myndir fljótlega.
Skil ekki alveg þessa spacera er það til að hann nagi ekki inn í grindina eða fannst þér hann ekki nógu breiður fyrir, ég eigilega botna ekkert i þessum speiserum en að öðru leiti er þessi smíði algjör snilld
Þetta er aðallega til að jafna breiddina á milli fram og afturhásingu. Framhásingin er úr Hi-lux Disel en að aftan úr Hi-lux sr-5 sem er mun breiðari. Þeir eru 2" á þykkt og svona líta þeir út .
Það er slatti eftir td að lækka bodyið aftur í orginal, demparaturna og festingar, á ennþá eftir að stytta togstöngina og stýrisstöngina ofl ofl ofl Þetta fór smá úr skorðum vegna þessa að ég þurfti að breyta og endursmíða gormafestingarnar að framan. Vona að þetta virki betur Hér eru tvær myndir af afturfjöðrunni, smá travel
En aftur hásingin hvað færðirðu hana mikið? er að sðá hvað hægt sé að teigja hjólabilið mikið á Jimny
metalice wrote ...
Framhásinginn er svona, færði hana fram um ca 13cm. Er að klára að smíða og styrkja grindina undir stýrismaskinuna (sem kemur úr land cruser 60) og togstöngina annað er eiginlega komið .
Ok er nefnilega með þá flugu í höfðinu að færa aftur hásinguna um 20cm og fr hásinguna um 15 cm hvað er heildar upphækkunin þegar boddy liftið er farið
ég heyrði einhverjar sögur um að þú hefðir látið smíða intercooler á hjól útí grikklandi á skít og kanil. er einhvað til í því? mátt endilega vísa mér á fyrirtækið ef sögurnar eru rétta.
ég er að fara setja VG túrbínu og cooler á hilux sem ég er á, ég þekki einn sem skipti út coolernum hjá sér fyrir svipað stóran og það var þvílíkur munur.
Jæja þá eru demparaturnarnir og festingar fyrir demparana komnar að framan, klikkaði aðeins rafsuðan í gær fæ hana í lag í dag. Þá er næst á dagskrá festingarnar fyrir demparana að aftan.
Maður reynir að hafa þetta vandað, þær klúðrust að vísu nokkrar suður í gær enn þær halda alveg örugglega þær urðu bara ekkert sérlega fallegar. En vélinn á að vera orðin góð núna......
Jæja þá er búið að stytta og snitta nýjar gengjur í togstöngina og stýrisstöngina, bodyið komið á í bili, núna er verið að spá í staðsetningu fyrir aftur demparana og hvort að fjöðrunarkerfið þoli alla þessa færslu, nokkrar myndir með.
Hérna eru stangirnar komnar í.
Bodyið komið á.
ísskápurinn er 1.50M
hann hallar ekki mikið
Svona er ca teyjan á fjöðruninni tommustokkurinn er 1 meter.
Næst er að smíða festingar fyrir afturdemparana á hásinguna