Er með 2000 árg. af Vitöru. Er keyrð 230.000 á boddy eitthvað minna á vél. Er með endurskoðun og er þar ýmislegt að. Þar sem ég hef ekkert vit á svona viðgerðum og hvorki aðstöðu né tíma þá er kanski einhver þarna úti sem hefði áhuga á að gera eitthvað í þessu. Bíllinn er ökuhæfur og ríkur alltaf í gang og er fínn í akstri. Best að telja bara upp það sem er að.
-ryð í sílsum -ein hjóllega h/m framan -spyrna h/m framan -demparar h/m aftan og v/m framan -olíusmit á vél -öxulhosur beggja megin að framan (innri að ég held) -eldsneytisleki (virðist vera eitthvað smit við tankinn, myndast aldrei neinn blettur)
held þetta sé þá komið. Setjum eitthvað verð á þetta. 100þús.