Fórum öll fjölskyldan í stutta jeppaferð uppá breiðadalsheiði.
Hef aldrei prufað að hleypa úr á bílnum til að jeppast eitthvað.
Jeppinn virkar fínt, hefði farið enn meir ef ég hefði hleypt meira úr. Ég þorði ekki að hafa of lint í dekkjunum því við þurftum að keyra niðrí bæ til að pumpa í aftur. Er ekki búinn að græja loftkútinn minn.
Þetta er tekið í gær. Hér hefur svo snjóað stanslaust síðan kl 6 í gær og hefur bæst helling í.
Og eitt... höfum tekið ákvörðun um að selja hann ef gott tilboð fæst í hann. Fínn og góður bíll en eini mínusinn er að hann er bara of lítill fyrir okkur fjölskylduna.
Nú er sko kominn tími á að við förum í eins og eina jeppa ferð áður en þú selur bílinn Ég er að keyra á 6 pundum núna á mínum bíl. Bæði innanbæjar sem utan:)