Sælir hálsar! Nú fyrir réttrúmum og hérumbil nokkrum dögum fékk ég mér þennan svaka vagn. Umtalaður vagn er af gerðini Suzuki SJ413, langan og er orginal með plasthúsi. Þáverandi eigandi fékk nóg af þessu plasthúsi og lét smíða fyrir sig yfir bílinn. Þessi bíll er svo líka teppalagður allur saman, klæddur upp eftir öllu alla leið upp í þak. Svo vel hljóðeinangraður að maður heyrir ekki í vélini sem er sérstakt í þessum bílum. Auk þess að vera svona fínn er einnig búið að eiga eitthvað við gírun á bílnum þar að seiga hann er ekki með orginal gírun. bæði hvað varðar aflrás og einnig hraðamælir lagaður. Bílinn er með vökvastýri og stendur ofaná fjöðrum á 33 " dekkjum. Þegar ég fékk bílinn var hann ekki svo ílla á sig kominn. ég varð að skipta um eldsneitissíu og dælu. Síðan endaði ég á því að skipta út blöndung sem var mökkfullur af skít! Ég fæ bílinn svona:
Þarna var hann verstur!
Tók hann, pússaði, grunnaði, málaði. Blessunarlega ekkert rið sem þurfti að bæta. Bíllinn stóð inni í ein 14 ár og er nú kominn á fulla ferð enn á ný! Svona lítur hann út í dag og gegnur alveg eins og klukka á orginal 1.3 l mótornum ekinn aðeins 137.000
Til lukku með bílinn, skemmtilegt project! ...Það sjást nú varla margir SJ413 með svona vandlega smíðuðu húsi? Hefurðu einhverja hugmynd af hverjum eða hvar það var smíðað? (Ég skrifaði BA ritgerð um ,,Hönnun bifreiða á Íslandi" á sínum tíma, því er þetta mér dálítið hugleikið hahaha)
það er allaveganna einn með svona húsi að grotna niður í tálknafirði,ásamt 2 stuttum,og einum stuttum sem er nánast horfinn,,eina sem eftir er af honum er hvalbakurinn
Það er aðeins til af þessum löngu bílum sem eru með heimasmíðaðar yfirbyggingar, allavega 1 á skagaströnd og 1 í kópavogi. En að mínu mati er þetta hús á Einars bíl lang vandaðasta húsið, allt bólstrað og með þakrennu og smíðaður efri hluti á afturhlerann
Sé samt hellings mun á þessum húsum. Mitt er með rennur á Þakinu og fyrir þá sem ekki vita munar það alveg helling uppá lúkk og hljóð. Síðan er minn náttúrulega besstur! haha. Já það er avleg tilefni til bíltúrs að kíkja á þessa bíla. Hefur lengi staðið til og það verður örugglega úr því nú þegar fer að líða að sumri