Ferð litlunefndar F4x4, Laugardaginn 21 Nóv
Sælir, við höfum nokkrir úr Sukka skráð okkur í Litlunefndarferð F4x4, til þess að sýna þeim hverjir eru bestir að sjálfsögðu.
Hvetjum ykkur að skrá ykkur, það kostar ekki neitt, dagsferð, allar jeppastærðir leyfilegar.
Gott skap, vonandi smá snjór enda kuldaspá...

-Endilega ef þið skráið ykkur, biðjið um að fá að vera í hóp með okkur sukka strákunum svo við höldum almennilega hópinn. Við sem höfum þegar skráð okkur erum Sævar Örn, Brynjar og Sigurjón.

Hér er allt um ferðina og skráning http://www.f4x4.is/index.php?option=com_content&view=article&id=951:skraning-hafin-i-novemberfere-litlunefndar&catid=75:litlanefnd&Itemid=130


PS MINNI Á FUNDINN FYRIR FERÐINA SEM HALDINN VERÐUR FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ 19 NÓV Á EIRHÖFÐA sjá kort MÆTING KL kl. 20:00. Á kynningarfundinum verður farið yfir leiðaval og helstu öryggisatriði kynnt, auk grunnnámskeiðs í jeppamennsku fyrir þá sem hafa áhuga á því.
Við hittumst á Shell, Select við Vesturlandsveg á laugardagsmorgninum kl. 8:30, en lagt er af stað stundvíslega kl. 9:00. Við áætlum að vera komin til byggða fyrir kl. 19:00 á laugardagskvöldinu.


Sjáumst HRESS!!

Sævar on Tuesday 17 November 2009 - 18:54:46 | Read/Post Comment: 10
Comments
hobo
17 Nov : 19:01
Reply to this
Ég skrái mig þegar hermannaklossarnir eru komnir undir! ...læt ekki sjá mig opinberlega á spariskónum :/
Sævar
17 Nov : 19:25
Reply to this
Endilega komdu með, það er hellingur af óbreyttum bílum að fara í þessar ferðir hjá þeim!!!
gisli
17 Nov : 21:26
Reply to this
Gæti vel hugsað mér að fara í þetta.
hobo
17 Nov : 23:03
Reply to this
Ég held ég sitji hjá, margt sem spilar inní, en ég mæti síðar, það er á hreinu.
stebbi1
18 Nov : 01:08
Reply to this
Líst vel á ykkur. munið bara að hafa með ykkur tóg til að draga hina upp
gisli
18 Nov : 08:53
Reply to this
Ég er búinn að skrá mig.
Er einhver í klúbbnum með VHF stöð sem gæti tekið að sér fararstjórn fyrir súkkhópinn? Það væri gaman fyrir okkur að vera saman í hóp, ég á enn eftir að hitta megnið af liðinu hérna inni. Gætum nýtt tækifærið í hópmyndatökur og svoleiðis.
olikol
19 Nov : 00:10
Reply to this
Ég ætla koma með sem coari hjá Einari, annars veit einhver hvort það er einhver vottur af snjó við skjaldbreið?
Sævar
19 Nov : 12:30
Reply to this
það rignir allavega í bænum, vonandi er frost uppfrá
EinarR
19 Nov : 12:57
Reply to this
á að vera við frostmörk og úrkoma frá því í gær allavega

Comments are locked
�essi s��a er keyr� � E107 vefumsj�narkerfinu. | Designed by Angelus Design