hvað ertu til í að gefa fyrir slíkan bíl? við ættum að geta fundið eitthvað fyrir þig, ertu að leita af háþekju,? lágþekju,? 410? 413? laungum eða stuttum? breyttum eða óbreyttum
Ég er mest spenntur fyrir lágþekju, 410 en ég gæti alveg skoðað 413. Helst stuttum, breyttur eða óbreyttur.. skiptir ekki höfuð máli.. væri ekki verra ef hann væri á ca 31" en ekki "mikið" meira en það. En ekki nauðsyn.
Bara fylgjast vel með hérna inni, það dúkkar alltaf eitthvað upp. Hann Birgir Björn virðist líka hafa einstakt lag á að finna þessar elskur, hann stefnir hraðbyri á að verða betrungur Ómars Ragnarssonar í súkkueign.
svo er náttúrulega slatti af þeim á Skagaströndinni. Ég held að þeir sem eiga fox eða samurai hérna á spjallinu myndu aldrei nokkurn tímann selja súkkuna sína. Maður verður bara leita þær uppi, banka uppá hjá eigandanum með 20Þ kr og hirða bíllinn, flestir hafa gert það hérna.
Ég og pabbi hittum kallinn sem átti gulu blöndás-súkkuna fyrir 2 árum síðan, og hann sagði að hann myndi aldrei á ævi sinni selja bíllinn. En gaman að hún er kominn í klúbbinn núna
Jæja, snjórinn nálgast og mig vantar enn súkku! Það hlítur að vera einhver hérna sem annaðhvort lumar á einum foxara/samurai eða veit um einn slíkan. Skoða bæði langar og stuttar, þarf ekki að vera breytt, en það er að sjálfsögðu mikill kostur og sparar mér mikla vinnu
Það er ein háþekja á Hólmavík, hægt að fá keypta á ca.30Þ með inniföldum sendingakostnaði í bæinn, svo er einn Samurai með throttle-body vél á Hvammstanga sem fæst örugglega keypt. Man ekki eftir fleirum í bili

já eg er allveg buin að gefast upp, hann er samt nánast klár er bara í vandræðum með að finna vél, og svo er þetta farið að kosta, lángar samt ekki að selja, er að hugsa um að fá mer jimny eða annan fox ef hann fer, er einnig til í skifti
Birgir, þú mátt ekki gefast upp. Með samstilltu átaki finnum við mótor handa þér þegar að því kemur. Er ekki nóg að dunda þangað til? Ef ég hefði tíma myndi ég mixa 1600cc í minn bíl og þá gætir þú fengið 1300 mótorinn (með nýrri heddpakkningu) fyrir lítið eða einhver hagstæð býtti. En tíminn er af skornum skammti.
já satt er það, juju það er nog að gera, þangað til sjáum hvað setur og reinum að klára helvítið, eg mindi sennilega alldrey fyrirgefa mer það að seljann