Hvar er hægt að nálgast loft og smursíur á besta verðinu í Suzuki Fox ?. Minn er enn með orginal 1000cc vélinni (gott núnaí kreppunni). Þætti vænt um að heyra frá einhverjum sem gæti frætt mig um það.
Var að athuga þetta í dag og komst að því að þetta er sama olíusían sem er í 1000 cc vélinni og alveg upp í Vitara svo það verður varla skortur á þeim á næstunni. Hef þetta eftir umboðinu.
Það er spurning með að við stofnum þráð með einhverskonar verðvakt fyrir svona fasta rekstarhluti í Súkkurnar eins og olíusíur, loftsíur, olíur o.fl tengt. Gæti sparað fyrir einhverja í kreppunni