Forums
Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda :: Forums :: Almennt spjall :: Kynning
Atli Þór Svavarsson << Previous thread | Next thread >>
Moderators: ADMIN, Sævar, olikol, gisli, EinarR, AA-Robot, joolli, edit
Author Post
Geysir
Mon Jun 01 2009, 11:15p.m.
Registered Member #15

Posts: 1
Sælt verið fólkið.

Atli Þór Svavarsson heiti ég og er stoltur Súkku eigandi.
Er fæddur árið 1989 og því á tvítugsaldri.

Skipti gömlum 190E Benz fyrir þessa fínu Suzuki Vitöru 1993 árgerðina.
Þessi bíll er með 1.6L 16V vélina sem að ég held skilar eitthvað um 96 HP og er þetta kraftatæki sjálfskipt.

Bíllinn stendur á fínustu 31" grófum dekkjum á nýjum hvítum felgum með alltof miklu lofti í, bíllinn vel hastur með rúmlega 30 pund í dekkjunum.
Annars er ég í leit að 33" dekkjum og mun fara strax í það að skera úr þegar ég fæ þannig dekk (þannig að ef þið vitið um 33" á þokkalegum prís að þá megiði endlega láta mig vita.)
Einnig er ég að leita að vatnskassa í svona grip.

Þessi græja kemur mér alltaf á óvart, skellti mér upp á Úlfarsfell núna í gær og fór Mosfellsmegin niður og stóð hún sig virkilega vel og fór allt og rúmlega það.

Annars ég lítið búinn að gera fyrir bílinn nema bara keyra hann, fer jú að fara og skipta um vatnskassa þegar ég finn hann og þá er líka planið að smyrja bílinn.
Setti reyndar bassabox í bílinn, lítið og nett.


Er ekki með myndir af bílnum en ég mun taka þær við fyrsta tækifæri og henda hérna inn.


Svo megiði endilega vera í bandi við mig ef þið eruð að fara í smá skreppitúra er alltaf til í að fljóta með ef tími gefst.

Hægt er að ná í mig í síma 846-1323 eða í gegnum msn, atli_forever©hotmail.com.


Annars já líst mér mjög vel á þessa síðu og vonast til að hitta sem flesta og ég er alveg til í að ganga í klúbbinn, megið endilega láta mig vita hvernig ég fer að því og hvað felst í því.

[ Edited Mon Jun 01 2009, 11:17p.m. ]
Back to top
olikol
Mon Jun 01 2009, 11:41p.m.
olikol

Registered Member #3

Posts: 633
Sæll og velkominn. Líst vel á bílinn þinn og endilega koma með myndir af honum.
Back to top
 

Jump:     Back to top

Syndicate this thread: rss 0.92 Syndicate this thread: rss 2.0 Syndicate this thread: RDF
Powered by e107 Forum System
�essi s��a er keyr� � E107 vefumsj�narkerfinu. | Designed by Angelus Design