Sigurður heiti ég 29ára og er frá Skagaströnd, og er stoltur súkku eigandi, ja eða þannig sko. Þannig er nefnilega að súkkan mín kemur til með að verða skráð sem landcruiser 70 (ef hún kemst einhvertíman á götuna). Þetta byrja ósköp sakleysislega, keypti þenna bíl af félaga mínum á einn kúpplingsdik og ísetningu í súkkuna hans, þá var hann bara 33 tommu breittur, reyndar bara á orginal dekkjum, og ekki með sömu hlutföll að framan og aftan. Nú það var auðvitað ráðist í að skifta um hlutföll, og sett undir hann 33 dekk, og þannig var hann notaður einn vetur.
Og svo gerðist þetta
Brotin fjöður og kúpplingin orðin léleg, þá var ákveðið að fara í vélarskifti, en þau áttu nú ekki að verða svona mikil aðgerð eins og orðið er. Ég var búinn að redda mér 1300gti vél úr swift með öllu lúmi og tölvu, þannig að það átti ekki að vera neitt mál, en það var ákveðið að fara fyrst í vélaskifti í gulu súkkunni. Og einhverstaðar á meðan við vorum að vinna í gulu, breyttist 1300gti vélin í 302ci (5.0l) bronco vél, með c4 ssk og bronco hásingum.
Og það var byrjað að smíða
Og svo þegar það var búið, var farið á vigt, og þar kom skellurinn, ca. 300kg of þungur að framan og ekki séns að hann fengi skoðun. Þá fékk ég grind úr 70 cruiser sem pabbi var búinn að leggja, og er búinn að færa allt yfir á hana, vantar bara að nenna að klára restina s.s að tengja bremsur, ljós, dempara að framan og eitthvað svona leiðinda pikkles.
Svona lýtur hann út í dag (reyndar kominn aftur inn)