Jæja, ég heiti Ólafur Kolbeinsson '91árg. og á Suzuki SJ-413 með heimasmíðuðu húsi. Smitaðist mjög fljótt af Suzuki-æði og eignaðist súkkuna mína 9 bekk í grunnskóla og er einn af stofnmeðlimum klúbbsins.
Bíllinn: SJ-413, 1987 módel, 33" dekkjum, með SJ-410 millikassa, snúið við á hásingum, sérsmíðað hús og framstuðari og með '91 Samurai vél..... og ekki má gleyma custom rúðupisskerfi með spíssa úr vitöru
Hérna er mynd af honum þegar ég eignaðist hann
Svona er hann í dag
Það á svo margt eftir að dunda í bílnum og alltaf að koma nýjar hugmyndir hvernig væri hægt að breyta honum meira