Er ekki viss hvort það þurfi nokkuð breytingaskoðun, hef allavega aldrei heyrt minnst á það í skoðun. Það er voða lítið mál að snúa bílnum við á hásingum, eina sem ég man eftir sem þarf að gera er að breyta festingum fyrir bremsurörin, þarft að smíða smá bita ofaná hásinguna til að leggja fjaðrablöðin á eins og er að neðan, en svo þarf líka að smíða millistykki fyrir stýrisstangirnar, það er nú örugglega það sem fer mest vinna í, en þetta á ekkert að vera neitt mikið mál ef maður kann aðeins að sjóða
þú þarf ábyggilega aðra stýrisarma og svoleiðis dót smíðar maður ekki sjálfur. Man ekki alveg afhverju, en held að það sé út af því að togstöng eða millibilsstöng rekst í fjöður. Persónulega myndi ég bara boddíhækka ef ég þyrfti að hækka. Annars er búið að setja eina á 35" án þess að hækka um einn einasta millimeter. Mín er á 33" alveg óhækkuð.
Við færðum líka hásinguna fram um 3 cm Það er einföld og ódýr aðgerð, borar bara ný göt fyrir miðfjaðraboltana. Þá þarf minna að vesenast í hvalbaknum.
Mín súkka er snúin við á hásingum, en það er lang sniðugast að hafa þá óupphækkaða, bara skera nóg úr þeim og færa hásingar, svo er 33" sem hentar langbest undir þessa bíla, 35" er alveg í það stærsta fyrir svona léttan bíl. Svo ef það vantar meira grip í dekkin þá er bara tekin upp dekkjarskurðarvélin og gripið skorið í tætlur