Birgir heiti ég , búinn að vera skráður hér á síðunni svolítinn tíma svo það er réttast að kynna sig. keypti mér eitt stikki grand vitöru í des 2010 og er búinn að breyta henni örlýtið síðan. kannski að maður fái að fljóta með í ferð við tækifæri.
Listi yfir breytingar (sem ég man eftir)
hækkaður á grind 3 tommur upphækkunarklossar framan 2,5" Cherokee gormar aftan hlutföll breytt úr 4.88 í 5,125 afturhásing færð aftur um 7 cm 12.5 stálfelgur 12.5 x 35" dekk BF-G 32 mm spacerar framan + aftan 33" xl7 brettakantar frá samtak (afturkanntar breyttir til að passa) Gúmmikantar á kanta frá bílasmiðnum kastarar framan vinnuljós á topp 2.7 L vél úr xl7 2005 185 hö (var með 2.0 orginal, of máttlaust fyrir minn smekk ) bsk kassi úr 2.5 grand vitara. (setti lock right læsinu í afturdrif , tekinn úr eftir að drif brotnaði , sennilega út af álagi) (læsingin er föl ef einhver vill) Smíðuð styrking á festingu fyrir framdrifskökkul.
það sem á eftir að gera: breyta ac dælu í loftdælu, tengja við kút og græja tengi smíða stigbretti loftlæsingar aftan og framan Kastaragrind
Svo á ég fullt af myndum af breytingum sem ég get sett inn við tækifæri ef ég nenni
Hann er að eyða svona 14 l meðaltali, þarf samt að mæla það aftur því hraðamælabreytirinn var í einhverju bulli. Ég finn ekki mikinn mun á eyðslunni m.v 2l mótorinn.
krafturinn er mjög góður , mikill munur .
Þurfti að setja spacera framan svo að felgurnar rækjust ekki í bremsudælur og til að halda sömu breidd að aftan setti ég spacera þar.
Hérna, þú ertu með 2,7 vélina, veistu nokkuð hvort að sama ECU gengur á milli 2.5 og 2.7?
kv.
Hólmar
Já ég er með 2.5 tölvu í þessum og 2.5 loom, svo þurfti ég að nota trottle body og loftflæðiskynjara úr 2.5 þar sem það var ekki eins. hugsanlega er hægt að mixa það við skynjarana á 2.7 vélina en ég fór þessa leið. Svo þarf að hafa immobilizer kerfi úr sama bíl og tölvan