Forums
Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda :: Forums :: Almennt spjall :: Almennt spjall
Að komast inn á Sukka.is << Previous thread | Next thread >>
Moderators: ADMIN, Sævar, olikol, gisli, EinarR, AA-Robot, joolli, edit
Author Post
Tryggvi
Thu Feb 25 2021, 07:04a.m.
Registered Member #356

Posts: 200
Góðan daginn

Það var eiginlega erfitt að komast inn á Sukka.is núna, því það kom upp viðvörun um að síðan væri ekki örugg og að það gæti verið vírus á síðunni og/eða einhverjir óprúttnir að reyna hafa af manni upplýsingar. Ég hafði svo sem enga trú á því, þannig að ég tók sénsinn, en það væri fallega gert af einhverjum að kíkja á hvort þetta sé vandamál fyrir fleiri en mig og hvort það sé þá hægt að lagfæra þetta.

Kveðja,
Tryggvi
Back to top
Sævar
Wed Mar 10 2021, 09:43a.m.
Umsjónarmaður vefsíðunnar

Registered Member #2

Posts: 3405
Sæll Tryggvi, ég lenti í þessu líka en súkka.is má stela öllum þeim upplýsingum sem hún vill af mér, ég hef engu að tapa.

Nú er síðan svo til komin úr mínum höndum, orðin mjög gömul og úreld og eiginlega eins og minjasafn, gaman að því og vonandi varðveitist hún sem slík.

Júlíus sér enn um að halda henni opinni en ég greiði fyrir lénið sukka.is árlega með glöðu geði, hef þó ekki átt suzuki bíl í að vera 7 ár

Spurning hvort Júlli geti athugað hvað veldur þessari aðvörun og kannski komið síðunni á öruggt form
Back to top
joolli
Wed Apr 07 2021, 11:43a.m.

Registered Member #1213

Posts: 11
Sælir,

Já... síðan fór í smá limbo. Skírteinið rann út því að sjálfvirka endurnýjunin virkaði ekki. Hún er komin í lag núna. Það var aldrei nein hætta en gott að vera á varðbergi ef þessi skilaboð koma upp á síðu sem þú ert vanur að heimsækja.
Back to top
Tryggvi
Wed Jul 16 2025, 10:16a.m.
Registered Member #356

Posts: 200
Góðan daginn

OK, gott að vita hvað var í gangi... En þótt að sumt af upplýsingum sem maður er með skipta engu máli... Ef óprútnir aðilar komast inn á einkatölvu manns og geta séð innsláttanir með öryggis orðum og með meiru... Þá er þetta orðið svolítið óþægilegt að hugsa til (svona vægt til orða tekið)...

Ég viðurkenni að það er langt síðan ég kom hér inn síðast, enda heilsa mín orðin MJÖG döpur því miður... Lenti í talsverðum hremmingum og hef ekki haft það gott... En ég hugsa hlítt til þessa síðu og hef gaman af henni. Við að "logga mig inn" þá voru viðvörunar meldingar um að upplýsingarnar væru ekki öruggar sem verið var að senda hér á milli með að logga inn... Spurning hvort það sé það sama sem er að eða eitthvað nýtt? Kannski Joolli gæti skoðað þetta?

Fékk líka þessa meldingu:
"You are not authorized to post to this forum."

Kveðja,
Tryggvi
Back to top
 

Jump:     Back to top

Syndicate this thread: rss 0.92 Syndicate this thread: rss 2.0 Syndicate this thread: RDF
Powered by e107 Forum System
�essi s��a er keyr� � E107 vefumsj�narkerfinu. | Designed by Angelus Design