ég var að fjárfesta í efnilegum Suzuki Sidekick 1995 á 10"breiðum 31" dekkjum og er ég búinn að mála og setja á hann kannta (brettakanntslista) en það var aðeins skorið úr og síðan lamið soldið og þeir límdir og skrúfaðir innan á og gat þessvegna ekki skorið mikið úr. núna er vandamálið það dekkin rekast að sjálfsögðu uppí við minnstu ójöfnu eða beygju og þarf ég því að hækka hann... ég vil sleppa sem billegast við þetta hálf idiot proof. ég er búinn að lesa soldið um að menn séju að setja klossa í fjöðrunina og lengja dempara og það sé að gefa um 2" hækkun sem er það sem ég þarf, spurning er hvar fær maður efni í svona hækkun og hvernig er það gert og er kannski eitthvað annað sniðugara?
ég er frekar mikið grænn í þessu en vill læra að umgangast þessa gæðagripi
það sem ég tel mig vita er að maður þarf að kaupa upphækunaklossa (nylon, 6stk.?) og lengja bensináfyllignarör, gírstöng, stýrismaskínu og eitthvað fleira býst ég við :S hvernig eru menn annars að lyfta boddýinu til þess að setj klossana á milli?
Ég veit ekki alveg hvernig menn lyfta boddýinu. En ef að þú kemst í skæra lyftu þá geturu notað hana til að lyfta boddýinu upp af gridninni. Það hefur held ég ekkert verið gert við gír stöngina hjá mér. en það var settur snitt teinn í millikassa stöngina. Semsagt snittað í stöngina og skrúfað ofaní. Og svo hnúðurinn á teininn
í sambandi við stýrið þá er hægt að draga út öxulinn sem fer úr hvalbak og í maskínuna. ég er með öxull úr óbreyttri súkku og mín er kækkuð um 7 cm á bóddýi. Bensínáfyllingar rörið þarf að lengja, gírstöngina er lengd hjá mér veit ekki hvort það þurfi.
Hægt er að lyft á boddýi án þess að nota lyftu í staðinn notari bara vengjulegan tjakk en það þarf að byrja öðru meginn og setja allt klossa þar og færa sig síðan yfir á hina hliðna
já held að það sé eina vitið að koma 33" undir hvað þarf ég þá að hækka mikið? en hvar fær maður allt sem þarf og hvað er það nákvæmlega
þarf víst að kaupa klossana en hvað marga og hvar eru boddyfestingarnar? hvernig lengir maður svo bensínáfyllingarörið og stýrismaskínuna? og þarf ekki að gera eitthvað varðandi bremsur? og í síðasta lagi, hvar fær maður dótið í þetta?
Það er nú búið að svara þessu fyrir þig með stýrisstöngina. Mig minnir að það heiti málmsteypan sem þú talar við í sambandið þessa boddý klossa. mundu bara að hafa orginal gúmmí púðana með þegar þú skellir klossunum undir. Mig minnir að ég sé með 2" klossa á mínum bíl.
Kannast ekki við að það sé vandamál, yfirleitt er í lagi að beygja rörin frami við kvalbak því þar eru þau yfirleitt hrein og óoxuð.
En athuga má með bremsudeilinn að aftan sem er, amk í vitara bílunum þarf að lengja arminn samsvarandi því sem bíllinn er hækkaður Á FJÖÐRUN en ekki bodí.
Annars bremsar bíllinn ekkert að aftan og fær sennilega tæplega skoðun