Þá er loksins komin heildarmynd á þetta hjá mér en smá frágangur er eftir auk boddíhækkunar. Gaman væri að fá álit ykkar með það í huga að þetta kostaði mig ekki nema 70 boddískrúfur og jafn mikið af brettaskífum, en það nær kannski 1000 krónum. Svo kostuðu sokkarnir 2500 kall.
sko þetta er eitt af því sem er svo ógeðslegt að þetta er töff. en þetta meina ég ekki illa. þetta er eiginnlega bara sjúklega töff, og að þér skuli detta þetta í hug bara stórt hrós fyrir ódýri en góðri aðferð og ýmsi kostir við þetta, td það skemmist ekkert þó þú rekir þetta utann í eithvað
Aðalatriðið er að nota þetta, menn gera bara eins vel og efni standa til. Ef að tími gefst seinna, ásamt aur og áhuga, þá má alltaf gera betur, en þangað til er bíllinn nothæfur og það er aðalatriðið. Naumhyggjan!
Þetta fær ágætis dóm sýnist mér. Ætlunin er að nota þennan bíl og er peningunum mínum betur varið svona en í rándýra kanta. Svo er líka tilgangnum náð, að hylja sólana. Ég sé frekar ástæðu til að taka upp heftið þegar kemur að öðrum hlutum eins og sjúkrakassa og slökkvitæki.
Þetta erekkert ljótt. en auðvitað soddið spes að sjá þetta. En ef menn kunna ekki að redda sér þá eru menn bara vonalusir hehe Þetta er frábær redding og gerir alveg sama gagn og rándýrir kanstar.
Þetta fær ágætis dóm sýnist mér. Ætlunin er að nota þennan bíl og er peningunum mínum betur svona en í rándýra kanta. Svo er líka tilgangnum náð, að hylja sólana. Ég sé frekar ástæðu til að taka upp heftið þegar kemur að öðrum hlutum eins og sjúkrakassa og slökkvitæki.
Haha, nei, þú ert einmitt ekki búinn að hylja sólana Spurning hvernig það sé túlkað í skoðunarhandbókinni, hvort það megi hylja sóla með sóla? En engu að síður, fín aðferð og um að gera að vera öðruvísi.
Góður Gísli að snúa útúr! Já ætli maður verði ekki að sýna lit og mæta eitt stk fund.
Við nafnarnir virðumst vera frekar góðir í þessum útúrsnúningum. Ég er farinn að halda að þetta sé eitthvað sem fylgi nafninu. því að pabbi heitir Gísli líka og við feðgarnir erum ansi duglegir í að snúa útúr fyrir fólki