Er með vínrauðann Suzuki Sidekick 1993 módel til sölu, bíllinn er óskoðaður, en það eru bara smáhlutir sem þarf að gera fyrir skoðun, og er jafnvel möguleiki að það verði lagað fyrir skoðun. Það sem er að er að gormur öðrum megin að aftan er ónýtur, og spindilkúla og öxulhosa að framan. Ég skipti um læsingu í bílstjórahurð þegar ég fékk bílinn (hún opnaðist ekki). Á alla þessa hluti til og fylgja þeir með, ef ekki verður búið að laga og skoða bílinn fyrir sölu. Hann er talsvert ryðgaður greyið, en bæði fram- og afturbrettin eru mikið ryðguð, en það kemur þó ekki að sök ef að bíllinn verður t.d. hækkaður upp og brettakantar settir á hann. Bíllinn er ekinn ca 130 þúsund mílur, en rýkur alltaf í gang og gengur eins og klukka. Gírkassi og drif virka vel. Það eru ekki samlæsingar í honum, en það eru rafdrifnir speglar og rúður allann hringinn. I dag er bíllinn á 15" dekkjum að framan og 31" að aftan. Á bara 3 31" dekk undir hann þar sem 1 sprakk, en á ss 5x felgur fyrir 31" dekk. Bíllinn fer á 15" dekkjum allann hringinn, nema beðið sé sérstaklega um stærri felgurnar og dekkin líka, en þá kostar það aukalega. og já að lokum, þá er geislaspilari í bílnum. Þarf að fara sem fyrst! Sendi inn myndir af bílnum þegar ég er búinn að þrífa hann.