Félagi minn er með sidekick og bendir allt til þess að heddpakkningin sé farin í súkkuni, hvað tekur það langan tíma að skipta um heddpakkningu ? Er eitthvað annað sem gott væri að gera í leyðinni finnst verið er að rífa þetta allt ? Svo lekur hann líka smurolíu hjá honum, er einhver pakkning líklegari en önnur að vera farin ? Kveðja. Þorvaldur Már
Það er sniðugt að askipta um ventla þéttningar. tímareim og því sem fylgir fyrst að er verið að rífa þetta á annað borð. slípa ventla og svona. ég myndi allavega gera það ef að ég væri að fara í svona aðgerð. en hvar lekur mótorinn olíu?
Hvar lekur hann olíu? Fram úr vélinni, aftur úr, með heddinu eða bara með ventlalokspakkningu. Það skiftir þó nokkru máli upp á hversu mikið mál það er að laga lekann. Það er t.d. ekki mikið mál að skifta um pakkdós á sveifarásnum að framan en ef það þarf að aftan þá þarf að rífa vélina úr.