Er í veseni með Jimny það er alltaf mótorljós logandi og það slokknar í smá tíma þegar ég hef tekið pólana af og sett aftur á?Hvað er svona það fyrsta sem ég ætti að skoða?
Endilega kommenta ef þið þekkið eitthvað til Jimny
Ef hægt er að lesa af honum sjálfur, finnurðu út úr því hér. Annars geturðu notað diagnosis chart eða þvíumlíkt, það er amk fullt hægt að gera áður en maður fer á verkstæði. Gangi þér vel.
Þeir eru allavega sanngjarnir miðað við helku umboðið. Ég hef heyrt að það kosti 15þús að láta tölvulesa bíl hjá þeim. Sel það samt ekki dýrara en ég keypti það.
Ef þetta er eittvað sem angrar þig ekki og þú villt losna við ljósið í skoðun er ekkert mál að taka bara peruna úr. ég skal gera það fyrir þig. ef þú villt það ekki sjálfur.
Takk fyrir þetta bílinn er óbreyttur og stífbónaður og á bara að vera í lagi þannig að maður verður að finna út úr þessu ég var bara að spá í hvað væri algengast að væri að þegar ljósið logar ef einhver þekkti vel til Jimny?
Algengast er að pústskynjari sé að focka eitthvað. eða hreinlega að bíllinn sé að menga of mikið. Aldrei hægt að segia nema að þú farir hreinlega niður í umboð og fáið þá til að lesa af honum fyrir þig.
Í manualnum sem ég benti á hér að ofan eru leiðbeiningar um hvernig á að jarðtengja pinna í OBD tengi bílsins og láta vélarljósið blikka kóðanum og benda þannig á bilaða skynjarann. Skv. bókinni eru þetta 10-12 skynjarar sem geta kveikt vélarljósið (eða bilun í vélartölvunni sjálfri) og þess vegna eina vitið að skoða þetta áður en farið er að skipta um skynjara upp á von og óvon. Þ.e.a.s. ef ekki á að láta lesa í umboðinu. Kv. Gísli
en í sambandi við pústskynjarann, getur verið að bílinn sé að menga of mikið og það komi villa um það frá pústskynjaranum, þó svo að pústskynjarinn sé ekki bilaður?
Pústskynjari kveikir bara vélarljósið ef hann er bilaður, hins vegar gæti bilaður spíss kveikt vélarljósið líka, en þá væri hann óvirkur og vélin með ljótan gang.
Ég held að það sé langt best að fara bara með bílinn í umboðið og láta lesa af honum þar. það kostar ekki svo mikið og er fljóltega gert. Ég lenti í veseni með wrangler sem að ég keypti bilaðan. Hann fór ekki í gang og ég fór að tala við hina og þessa sérfræðinga. Þegar ég var búinn að versla varahluti fyrir rúmlega 30þús komst ég aðþví að talvan væri ónýt. Ég fór til góðavinar hans Sævars semsagt ragga og fékk lánaða tölvu hjá honum. og dollan hrökk í gang. Og keypti svo tölvuna af honum. En ég hefði sparað helling af peningum bara við að fara með bílinn í lestur því þá hefði strax komið upp að talvan væri ónýt. Það marg borgar sig bara að renna með bílinn í umboðið og láta lesa hann. Það er langa auðveldast og kostar nú ekki mikið.