Er með Sidekick ´95 til sölu í heilu eða pörtum, hann er ekinn um 146 þús. mílur minnir mig og er á númerum og ökufær, þarf að dytta smá að honum fyrir skoðun og er með gamla endurskoðun en ekki með sekt, fæst á 100 þúsund kall á 31" dekkjum og 10" breiðum felgum, er annars óbreyttur.
Bíllinn er beinskiptur, það þarf að stilla aðalljós, vantar númeraljós að aftan, ryðgat í hægra afturbretti og slappur síls hægra megin, það var nú samt ekki sett útá sílsinn í skoðun en það er búið að skipta um vinstri sílsinn.