Ég er stoltur eigandi að Jimny ´08 sem ég keypti hraustlega oltinn fyrir ári síðan. Það kláraðist að púsla honum saman í sumar og hann kemur ljómandi vel út. Mann er hinsvegar farið að langa mikið að drífa í að breyta honum. Búinn að versla 33" dekk og kanta og 10" breiðar felgur. Hvað ætli maður þurfi að hækka kaggann mikið? Hvernig hafa menn verið að hækka þessa skrjóða og hvað mikið? Ég held hann hefði gott af því að hækka bæði á boddí og gormum. Eru til lengri gormar undan einhverju öðru sem passa undir Jimnyinn? Hvað má maður hækka mikið á boddíi? Þætti gott ef einhverjir sem hafa staðið í þessu mundu vilja miðla af reynslu sinni...
Breytingar fyrir suzuki jimny 12 þúsund plús dekk fyrir 31", en fyrir 33" ef þú vilt að þetta sé almennilegt þá þarftu að kaupa kanta sem eru 70-90 þúsund ómálaðir, nema að þú viljir nota ódýra kanta af vitara eða eitthvað slíkt, það hefur verið gert áður og kostar mjög lítið, eg get frætt þig endalaust um þessi mál ef þú vilt og svarað sennilega flestum spurnungum varðandi breytingar á jimny, eg hef sjálfur breytt 3 og átt 4 breitta jimny, gæti jafnvel aðstoðað ef vilji er fyrir höndum,
31" semsagt fyrir 31" þartu 4,5 cm upphækkunar klossa fyrir gorma, 12 þúsund hjá málmsteypan hella í hafnarfyrði, 31" dekk, drullusokka efni, leingja dempara, það er einfalt, skéra lítilega úr plasti og lemja smá,
33" fyrir 33" þartu 4,5 cm upphækkunar klossa fyrir gorma, 33" dekk drullusokka efni, leingja dempara, skera úr, og setja viðeigandi kanta, annað hvort sérsmiðað eða mix, þetta geingur bara ef samslátturinn er hafður í það allra minsta svo dekkin rekist ekki í, ekki er verra að boddý hækka hann lika fyrir þessa breytingu en það er töluvert meiri vinna,
boddýhækkun losa þarf boddy og lifta þvi töluvert hátt þvi að boltarnir sem halda boddýinu er ekki lausir heldur loðaðir fastir við boddý, þvi þarf að leingja þá með snitt tein og langri ró eða sjóða á þá, svo þarf að leingja millikassa staungina, og færa eina festingu fyrir bremsurör á milli boddy og grindar,
gormahækkun losa þarf demparana og lifta bílnum þar til gormarnir nást undan svo þarf að koma klossonum fyrir ofan við gormana og tilla bílnum niður á gormana, síðan þarf að leingja demparana með að sjóða auka auga uppi og niðri að aftan og leingja pinnan að ofanverðum depmararum að framan, einnig er hægt að sleppa við að leingja þá ef festingarnar að neðan eru einfaldlega færðar aðeins ofar eða eins og þarf, svo mæli eg með þvi að samsláttar puðarnir séu færðir niður um 5 cm, að framan þarf það að vera gert áður en gormonum er komið fyrir, til þess þartu að sjóða lítilega og þú þart rör í 2 sverleikum,
reglur um breytingar, þú mátt boddy hækka um 5 cm án breytingar skoðunar og sama gildir um gorma hækkun, einnig máttu hækka um 5 á gormum og 5 á boddý án breytirngar skoðunar, en ef þú ferð uppfyrir þessa 5 cm á öðru hvoru og ert kominn með yfir 10% stærri dekk þartu breytingar skoðun, nauðsinlegt og æskilegt er að hafa slökkvitæki ásamt sjúkrakassa fyrir skoðun, einnig eru drullusokkar skilda,
vonandi nýtist þetta þér eitthvað, eg á lika haug af myndum ef þú vilt sjá eitthvað af þessu gert,
þessi er á 31" hækkaður um 4,5 á gormum með formverk kanta fyrir 31-33 þessum bíl breytti eg ekki en eg átti hann í töluverðan tíma og hringlaði mikið í breytingonum á honum, var með flækjur, 2 rafgeima, kassa á skotti og fult að gotteríi
þennan hækkaði eg um 9 cm á gormum með 2 sett af 4,5 klossum og 33" dekk og mix kanta einnig útbjó eg á hann prófílteingi að framan og aftan og smíðaði kastaragrindina
þessi er boddýhækkaður um 5 og gormahækkaður um 4,5 og er á 31" aðeins skorið úr plasti,
þessi er líka með 5 cm boddy hækkun og 4,5 gorma hækkun er enþá á original dekkjum þarna, eg skar töluvert mikið úr þessum enda kem eg 35" undir
Takk, þetta kalla ég skjót svör Ég stefni á 33" breytingu, er m.a.s. búinn að kaupa dekkin! Ég á formverks 32" kanta sem ég ætla að nota. Ég er nú ekki einu sinni búinn að bera þá við en ég held að þeir leyfi bara lágmarks úrklippingar. 5cm á gormum og 5cm á boddíi hljómar vel. Ég vil helst að bíllinn geti fjaðrað smávegis. Hvar fær maður gott efni í boddíhækkun? Hvernig er fjöðrunin í bílunum sem eru komnir með þessa 4,5cm upphækkunarklossa fyrir gormana? Hafa menn eitthvað verið að föndra með að setja lengri gorma?
skal leita af þeim sem eg á, eitthvað er af mindum inná www.flickr.com/jimny33 eg veit um einn sem setti leingri gorma hann pantaði þá að utan og setti hann á 35" en annars hafa menn verið að nota þessa klossa bara, eg var alltaf sáttur með hann með þessa klossa, og ekki var hann síðri þegar eg var buin að síkka stífurnar að framan en það er ekki nauðsinnlegt með 4,5 svo reif eg líka ballanstaunina undan þá varð hann strax betri utan vega en svoldið svagur á malbikinu,
Hvernig læsingum er mælt með í slíkt ökutæki? - Ferð 90% af því sem að þú þarft að komast ólæst á svona dóti.
Jimny á 35", hvað stoppar slíkt tæki? - Þessi 10%
Hverju eru helstu gallarnir við þessa bíla þegar uppá fjall er komið? - Að hafa ekki haft pláss fyrir myndavélina. Finn ekki mynd af jimny á 35" þar sem að ökumaðurinn hefur tekið myndina sjálfur.
eingir gallar að mínu mati, bara best! hann er fínn í akstri, og þú mindir bara hafa hann á minni dekkjum innan bæjar ef þú mindir vilja, annars er hann alltílæji á 33" stórfínn á 31" innanbæjar
Það er auðvitað lúxus að hafa hann á t.d. 31" innanbæjar og eiga stærri blöðrur fyrir jeppatúra. Þó það kosti fjárútlát að eiga tvo ganga, þá getur vel verið að það borgi sig til lengri tíma, hann eyðir þá minna í snattinu og slítnar minna, t.a.m. bremsur, hjólalegur, spindillegur og svoleiðis.
Það var nú ósköp lítið að líffæragjafanum. Fékk hann ódýrt bara. Miklu ódýrara en að fara að tjasla upp á skemmda boddíið. Notaði m.a.s. líffæragjafann til að draga bílakerru með rauða á austur á Reyðarfjörð
Það er langt síðan ég keypti kantana á 60 þús minnir mig. Þeir voru ansi hráir og var talsverð vinna að gera þá klára fyrir sprautun. Þurfti líka aðeins að breyta framköntunum aftan við hjól til að hafa nóg pláss fyrir 33".
Boddíhækkunin var höfuðverkur. Lét smíða fyrir mig dótið í hana fyrir austan.
3ja neðsta myndin er tekin einhversstaðar á leiðinni út í Fjörður.
Það versta var að maður var svolítið að finna upp hjólið. Verður fljótlegra næst! Það eru s.s. 8 boltar sem halda húsinu á grindinni. Fremstu eru undir framljósunum og þar setur maður bara klossa og lengri bolta á hefðbundinn hátt. Sama sagan með öftustu 2 boltana. Hinsvegar eru 2 boltar aftan við framhjól og 2 framan við afturhjól þar sem boltarnir eru soðnir fastir í boddíið. Það er hægt að skera sér leið að fremri boltunum innan úr bíl, skera þá úr og setja aðra í staðinn. Það er ekki hægt að komast að boltunum framan við afturhjólin með góðu móti. Þar er best að eiga svona langa ró sem nær í orginal boltann. Þetta sést ef þið skoðið myndir af boddíhækkunarsettunum í dgtuning.com. Ég lét smíða svona langar rær fyrir mig.
reglur um breytingar, þú mátt boddy hækka um 5 cm án breytingar skoðunar og sama gildir um gorma hækkun, einnig máttu hækka um 5 á gormum og 5 á boddý án breytirngar skoðunar, en ef þú ferð uppfyrir þessa 5 cm á öðru hvoru og ert kominn með yfir 10% stærri dekk þartu breytingar skoðun, nauðsinlegt og æskilegt er að hafa slökkvitæki ásamt sjúkrakassa fyrir skoðun, einnig eru drullusokkar skilda,
Nú er súkkan mín hækkuð um 2" á boddý og eina 1" á gormunum. Ég þarf að fara með hana í skoðun í apríl og á ég þá ekkert að hafa áhyggjur af því að fá ekki skoðun þó hún sé á 33"??? Því nú eru dekkin meir en 10% stærri en orginal. Ég hef verið að hafa áhyggjur af þessu. En bíllinn virðist nú hafa fengið skoðun áður en ég veit ekkert hvort að það hafi verið farið með hann á minni dekkjum.
Það versta var að maður var svolítið að finna upp hjólið. Verður fljótlegra næst! Það eru s.s. 8 boltar sem halda húsinu á grindinni. Fremstu eru undir framljósunum og þar setur maður bara klossa og lengri bolta á hefðbundinn hátt. Sama sagan með öftustu 2 boltana. Hinsvegar eru 2 boltar aftan við framhjól og 2 framan við afturhjól þar sem boltarnir eru soðnir fastir í grindina. Það er hægt að skera sér leið að fremri boltunum innan úr bíl, skera þá úr og setja aðra í staðinn. Það er ekki hægt að komast að boltunum framan við afturhjólin með góðu móti. Þar er best að eiga svona langa ró sem nær í orginal boltann. Þetta sést ef þið skoðið myndir af boddíhækkunarsettunum í dgtuning.com. Ég lét smíða svona langar rær fyrir mig.
þegar eg boddhækkaði mína þá fór eg nú bara í byko og keifti mér lángar rær og snitt tein og leingdi alla boltana, mjög einfalt hehe
Ég gerði svipað og Biggi, nema ég er með prófíla sem hækkunarkubba. Ég hafði mikið fyrir því að útbúa mér tengirær því snittið var svo spes og ekki til rétta rær. Svo kom í ljós að ég þurfti að stytta boltann svo mikið að allar gengjurnar fóru af og ég snittaði hann alla leið upp í boddí. Sumsé, það hefði ekki skipt neinu máli hvernig hann væri snittaður þar upp, hefði bara getað notað venjulega tengiró. Að öðru leiti kemur þetta ágætlega út, tengiróin er inni í miðjum prófílnum og neðanfrá má nota snitttein og ró eða passlegan bolta. Held þetta myndi ganga nákvæmlega jafnvel upp í Jimny. Efniskostnaður var ca. 2000kr (prófílinn átti ég til).
Ég fékk mér svera bolta, sagaði hausinn af þeim, boraði og snittaði upp í legginn á þeim og skrúfaði þá upp á boltana á boddíinu. Ódýrt, einfalt og lúkkar svakalega röff