eg er að vona að eg fái þetta bætt, en eg veit að þeir laga alldrey bílinn þvi það er of dýrt, í besta falli fæ eg eitthvern pening, eða þeir bjóðast til að kaupa hann, og það er að seigja ef eigandin á timbrinu fynst
Hérna í eyjafirðinum er partasal sem heitir Autopartar (863-1232) Labbaði þarna um daginn og það er þó nokkuð af jimny bílum þarna, man nú ekki alveg ástandið a þeim
Einkaskilaboðaviðbót síðunnar er frábær tækni til að rífast yfir netið. -Ákvað að taka út skilaboðin ykkar og vona að þið sættist að nýju. En notið þess í stað einkaskilaboð.
já eg er svakalega ánægður með þá en eg á eftir að laga spaslið soldið mikið og kíttið og mála þá en það er bara ein helgi, nenni þvi bara ekki allveg strax
Ég tók einmitt allar skrúfurnar úr köntunum hjá mér og stöðvaði talsvert ryð síðasta sumar, ef ég skil rétt voru þessir kantar teknir af og settir á aftur 2003.
Ég límdi þá bara með soudaflex, mattaði bæði yfirborð vel og þetta heldur enn í dag og hefur meðal annars fengið að sleikja vegrið ofl.