Sælir hálsar! Ná á fimmtudag, sumardagurinn fyrsti nánar til tekið, ætlum við að halda fund / Ljósmyndakvöld / Rúnt? Hittumst hjá mér Vorsabæ 13, sem er í árbænum á slaginu 4. Tökum smá spjall og taka hugsanlega smá rúnt um bæinn. Við skulum stefna að því að mæta á súkkum svo hægt sé að taka góðar myndir. Síðan þegar tekur að líða á dag skulum við skoða ljósmyndir og þar ætla ég að bera undir ykkur hugmynd af dagatali. Fá svo að sjá nýliða sem ekki hafa mætt á fund að koma og sýna sig fyrir okkur hinum!
Væru menn til í að hittast og horfa á ljósmyndir? Mig langar að fara að vinna í Suzuki Dagatali og væri meira en til í að deila því með ykkur að velja ljósmyndir í fyrrumrætt dagatal. Þennan hitting væri hægt að hísa heima hjá mér en ef eitthver hefur aðgang að til dæmis skjávarpa þá væri það algjör draumur! Hvernig lýst ykkur á þetta? á ég að finna dagsettningu á þetta bara? Eigið þig ekki eitthverjar ljósmyndir? Jafnvel hægt að hittast og taka svo rúnt upp á úlfarsfell og ná einni góðri ljósmynd á flotanum. GAME??
Það er jú akkúrat ekki mál fyrir óbreitt bíla að fara uppá úlfarsfell svo þetta ætti að hemta öllum. annars væri gaman að hittast og fá sér jafvel pítsu ef menn eru spenntir fyrir því
Eiga ekki eitthverjir til myndir af sukku? þá úr ferðum eða eitthvað álika?
Ég á slatta af myndum. þær skástu eru auðvitað hérna inni á spjallinu. En ég get líka sent þér link inná síðuna sem að nota til að hýsa myndirnar þannig að þú gætir þá valið eitthvað til að hafa á myndakvöldinu. Annars er ég voða spentur fyrir því að komast í bæinn á svona myndakvöld
Mig langar að fá myndir af sem flestum bílum svo að það væri algjör snilld að fá myndir af ykkar bílum þó að þið eigið bara eina af ykkar bíl þá vill ég fá þá mynd. ég skal líka taka mynd af bílnum ef mönnum líst á það. Endinlega fjölmenna á þennan fund og helst á súkkum svo hægt sé að taka myndir af þeim saman.
þið þarna á norður og vestulandi skulið bara hittast í staðaskála og keyra á einum bíl í bæinn og mæta einfaldlega á fund. Getur alveg eins haft hann á helgardeigi
Ég var að spá hvort ég mætti mæta? Ég er ekki kominn með próf (kemur í nóv) en hef haft mikinn áhuga á súkkum. Gaman væri að fá að sitja í einhverjum bílnum í smá rúnt? Get komið með góða myndavél og tekið myndir .
Ef þú kemur þér á staðinn hlýtur að vera hægt að skjóta þér í eitthver sætið þó súkkurnar séu ekki plássrúmar
En að sjálfsögðu eru allir velkomnir á þennan fund og þá einna helst þeir sem ekki hafa áður mætt en hafa áhuga á að kynnast félagsskapnum kringum þennan klúbb
Hef aldrei mætt á fund áður, Kemst alveg sjálfur þangað, stefni að því að fyrsti bíllinn verði súkka. Bara langar rosalega að fá að skoða þessa bíla aðeins betur. Hefur alltaf langað í súkku frá um 9 ára aldri alltaf horft framhjá Patrol og þessum stóru bílum. Get tekið þokkalega myndir með þessari vél. Ekkert professional samt