Jæja, keypti mér nýja súkku um daginn sem ég held að þurfi ekki að kynna neitt nánar til sögunnar, enda kannast sennilega allir við þennan gæðing.
Framtíðarplön eru mikil, en á meðan snjórinn lætur sjá sig, þá er markmiðið að henda vél í kvikindið og nota þetta. Seinna meir er planið að taka boddyið aðeins í gegn og gera þetta lekkert.
Ég byrjaði á því að fara með bílinn í sveitina, en meiru kom ég ekki í verk, enda valdi ég ekki skemmtilegasta veðrið til að fara með bílinn. Ég fékk mér volvo b21 með innspýtingu sem ég ætlaði að setja ofaní hesthúsið, en eftir nokkrar pælingar held ég að það verði maus þar sem ég ætla að hafa hásingarnar nokkurnveginn á sínum stað. Eða hvað segja spekingarnir um það?
Ég held að þægilegasti kosturinn fyrir mig væri að finna 1600 vitöru vél, en þær eru ekki á hverju strái sem þarf ekki að gefa aðra hendina og hægri fótinn fyrir.
að mínu mati er stálvél eins og t.d. B21 eða eitthvað hilux dót alltof þungt í þessa bíla, sérstaklega í styttri bílana. Það er nú alveg í lagi að nota þessa mótora í löngu foxana sem eru komin á stærri dekk. Myndi miklu frekar reyna finna þér einhverja 1.6-2 L álvél, bara úr einhverjum fólksbíl. Í minni súkku er 1600 16v sem er nú bara ca. 10 kg þyngri og er á 35" og ég myndi ekki vilja hafa þyngri vél því þyngdarpunkturinn er ca. við hvalbakinn. En þessi vitöru vél er alveg nógu kraftmikill, himinn og haf á milli 1,3 og 1,6 í þessum bílum. Annars er margt annað í boði, fullt af bílum með litla spræka mótora úr áli
Ég ætlaði að fara í 1600 vitöru, en ég hef enga svoleiðis fundið. Ef einhver liggur á svoleiðis vél, þá væri það snilld, ég maður vill líka ekki eyða alltof miklu í svona vélar..
Hugsa að volvoinn sé skemmtilegasti fólksbílamótorinn í stöðunni, þannig að ég ætla allavega að máta hann ofaní og sjá hvað gerist. Það hlýtur að vera hægt að redda þessu einhvernveginn, trúi ekki öðru.
sæll ! Hafsteinn , ein vél er sem dettur í hug í viðbót og það er toyota R22 hilux/cruiser vélin , spræk ekki mjög þung og eyðir ekkert óhóflega . Veit um eina slíka til sölu á Hvanneyri . Þau sem eiga vélina heita Davíð og Sæunn(mágkona Trausta á Hamraendum)
sæll ! Hafsteinn , ein vél er sem dettur í hug í viðbót og það er toyota R22 hilux/cruiser vélin , spræk ekki mjög þung og eyðir ekkert óhóflega . Veit um eina slíka til sölu á Hvanneyri . Þau sem eiga vélina heita Davíð og Sæunn(mágkona Trausta á Hamraendum)
Sko, ég ætla ekki að setja einhverja saumavél, sláttuvél eða reiknivél í húddið á þessum bíl. Ég ætla að halda honum réttum megin við 100hp og þó það kalli á aðeins meiri þyngd, þá verður bara að hafa það. Hins vegar er allt yfir 120kg orðið vesen.
En hvaða mótor annar kæmi til greina sem er möguleiki að finna einhversstaðar?
Er ekki málið að henda bara volvo relluni í?? Elliofur á jeppaspjallinu er með turbo mótor úr volvo til sölu. Það gæti nú orðið eitthvað til að þeyta sollu áfram
M42B18, er hún ekki ágætlega létt, togar fullt og eyðir litlu?
Myndi sleppa því að bmw væða þetta. en hvernig væri að skoða range rover 8cyl vél. Hún er léttari en B20 t.d skellir á hana edelbrock tor og þá færðu fullt af afli sem að leynist í þessum vélum en kemur ekki fyrr en að það er búið að skella edelbrock í hana. En ég sel þetta ekki dýrara en ég keypti það.
eyðslan í range rover er líka draugasaga, þeir eru ekki eins skelfilegir og allir eru að segja, tala ekki um þegar þeir eru í bíl sem rétt sleikir tonnið
Jæja, ekkert að frétta af sollu, hún stendur bara og bíður átekta.
En í bílinn mun fara 1600cc Vitöru vél, sem ég held að eigi eftir að vinna nokkuð vel í bílnum. Þetta er þó allt á hold hjá mér í augnablikinu vegna aðstöðuleysis, en það breytist á næstu mánuðum, þannig að solla verður vonandi klár í snjóinn næsta vetur
En planið er bara að græja og gera rólega með vorinu og gera þetta almennilega. Ýmislegt sem má betur fara í bílnum, og fyrst maður er nú að þessu á annað borð eftir að sjórinn er farinn, þá er alveg grá upplagt að taka þetta bara alla leið.
Ef ég væri að setja bensínmótor í Súkkuna mína þá myndi ég setja j30a1 Hondu mótor í Súkkuna. Hann vigtar ekki nema 110kg og er 200hö og 264 Nm. Smá spec ( Output for the light weight 250 lb (110 kg) J30A1 was 200 hp (150 kW) @ 5500 rpm and 195 lb·ft (264 N·m) of torque @ 4800 rpm. ) Held að þetta myndi duga flestum Súkkum.
Sko, þar sem ég er að fara að rífa þetta allt í spað á annað borð, þá er í raun alveg sama hvaða vél ég set í bílinn. En mig langar til að halda í léttleikann, en auðvitað langar manni alltaf í meiri kraft. Turbo diesel vitöru vél væri draumurinn, en þær eru ekki á hverju strái.
Annars tek ég vel í allar vélarpælingar, svo lengi sem þær eru léttar og sprækar
1600 cc vél úr mini cooper s skilar 170 hö við 6000 og 220 nm við 4000 snúninga þetta er léttt vél með reimdrifnum blásara, það er til svona vél hjá netpörtum.
Já, þetta eru góðar pælingar. Planið er að rönna 37" dekk í framtíðinni, þá er alveg spurning hvort 1600 vitöru vélin sé jafnvel of lítil fyrir þessi dekk.
ef 1,3 blöndungs dugði fint hjá mer og stebba þá ætti 1,6 inspitingar mótor að vera fínn fyrir þig. oli er sáttur, ef ekki þá skelliru turbínu á þetta bara
Ég byrja á þessu í apríl líklega, er bara að sanka að mér drasli þessa dagana, og spá og spekulera hvernig þetta verður alltsaman.
En það kemur allt í ljós þegar ég byrja á þessu hvað ég geri varðandi dekk og vél, ætla að sjá bara hvað kemur best út og hvaða leiðir ég fer varðandi fjöðrun osfrv.
vitöru vél á alveg að duga. það er ennþá orginal vélin í vitörunni hans Sævars og hann er núna á 36" og er að fara setja hann á 38". 1600 sleggjan ræður léttilega við þetta
Vitaran er eins og áður segir með feykinóg afl til að trukka áfram undir 1800kg bíla, vegviðnámið hefur lítil áhrif enda hefurðu 5 gíra er það ekki, og eins asnalegt og það hljómar eyðir 1600 vélin minnstu bensíni á rúmum 3000 sn., 3200 ef ég man rétt og hestöflin eru flest á 5500, þannig best að halda sig á 4000 og ég hef ekki séð það skemma mínar súkkuvélar að standa á útopni í 6500-7200 sn, undir álagi í lengri lengri tíma, en ég er líka með 100% kælikerfi þ.e. nýjan vatnskassa, dælu og viftukúplingu og allar olíur oþh. í toppstandi.
Já, eins og ég segi, þá er vitaran efst á lista, en svo vill maður alltaf fá meira afl. Hvernig er vitara turbo disel vélin að virka varðandi tog, afl osfrv?
já hún togar meira en 1600 en gerir það á mjög óhagstæðum snúning þ.e. heldur illa gírum í langkeyrslu og upptakið er ekki sérlega gott, en eyðslan er sættanleg eða um 9-11 litrar ekki ósvipað 1600 vélinni en ég held að bensínvélin hafi heilt á litið vinninginn þegar að notkunargildi í súkku er að ræða,,,