Þessi seldist ekki alls fyrir löngu og mig minnir að eigandinn sé spjallverji hérna, en þyrlupallurinn og snorkelinn vakti akkurat mikla athygli mína síðasta sumar þegar ég sá hann reglulega.
Þessi er búinn að vera í eigu sama aðila í nokkur ár. Hann er búinn að fá margar stundir í meikover. En það stendur alltaf til að setja inn póst hingað með myndum af ferlinu. Þetta er sannkallaður kreppubíll, boddíð samsett úr amk. fimm bílum. Snorkelið var fengið úr Byko fyrir tæpl. 5000kall (með festingum), en það var gert af illri nauðsyn, því ég starfaði sem skálavörður í Þórsmörk í nokkur ár. Þyrlupallurinn var smíðaður á svipuðum forsendum, og búinn að trússa marga bakpoka og bjórkippur í gegn um tíðina. Ég þarf endilega að fara að gera mig sýnilegri í þessu frábæra spjalli og félagsskap. Bíllinn heitir Mosi, (með vísun í áferðina á vélalakkinu)
ekki ætla ég að skíra minn bíl mosa þó hann sé í sama lit. En flott nafn á kaggann samt. En ég kalla minn bara altaf Army grænu súkkuna hehe Endar stendur til að mála hana sem fyrst og breyta útlitinu örlítið. (litalega séð)
Mig minnir reyndar að liturinn á lakkinu hafi heitið ,,flöskugrænn" þess vegna kom til tals að kalla hann Flöskuna en það laut fljótt í lægra haldi fyrir Mosa þegar áferðin kom í ljós hahaha Keypti ég nokkuð drifköggul af þér Gísli? Amk. keypti ég köggul af einhverjum náunga sem sagðist eiga / eða hafa átt súkku í sama lit og Mosi
Þú hefur allavega ekki keypt hann af mér. Ég kaupi bílinn í desember. Þannig að ég er ekkert búinn að eiga bílinn neitt voða lengi. ég fékk bílinn frá Hornafirði. ég veit ekkert hvað þeir feðgar sem áttu hann á hornafirði áttu hann lengi. en félagi minn breytti bílnum og þá var hann rauður. ég komst einmitt að því þegar ég var að segja honum frá bílnum. Þegar ég sagði honum að hann væri svona hermanna grænn og hafði verið rauður þá fattaði hann að hann hafi breytt bílnum. En hvar fékstu drifköggulinn?
Já ég skil, en ég man ekkert hvað gaurinn hét sem seldi mér köggulinn, en gæti hafa verið fyrri eigandi því það er ekki nema 2 mán. síðan. Þetta er dálítið finndið því ég var að skoða myndir af þinni súkku hérna á síðunni og þeir eru ansi keimlíkir á litinn hahaha (minn var líka upphaflega rauður) ...ég hef samt ekki enn mætt þér í umferðinni!
Hahaa þvílík snilld að þeir skuli vera báðir með þessum lit og hafa verið rauðir áður En það er kanski ekkert skrítið að þú hafir ekkert séð mig í umferðinni. Ég sótti bílinn í RVK í byrjun desember. Frændi minn sem býr á Hornafirði bauðst til að keyra honum í bæinn fyrir mig þar sem að hann býr þar og ég keypti bílinn þaðan. En ég er á Þingeyri þannig að bíllinn hefur ekkert sést neitt í bænum síðan að ég sótti hann. En hann er nú búinn að fara ansi margar ferðar frá Þingeyri til Ísafjarðar. En það væri nú ansi gaman að geta stilt þessum 2 bílum upp hlið við hlið og taka myndir af þeim